Vettlingarnir eru ætlaðar á dömur/unglinga og eru í einni stærð, en auðvelt að stækka/minnka með því að skipta út garni og eða grófleika prjóna. Prjónað úr Léttlopa á prjóna nr. 3 1/2 (ath. að vettlingarnir eru prjónaðir á fínni prjóna en framleiðandi gefur upp, til að gera prjónið þéttara).
Magn af bandi: "Steinn": Ein dokka af hverjum lit: Hærusvartur 0005, Hvítur 0051, Gulmura 1703, Bleikur 1412, Lambagras 1705
"Skæri": Ein dokka af hverjum lit: Grenigrænn 1407, Grágrænn 9421, Hvítur 0051, Gulmura 1703, Apríkósugulur 1704
"Blað": Ein dokka af hverjum lit: Grár 0057, Fölgrár 0054, Hvítur 0051, Hærusvartur 0005, Jökulblágrænn 1404, Blágrænn 9423
"Steinn", "Skæri", "Blað" Dömuvettlingar
kr1,200Price